Heimasíða
 
 


English
English version

 Heimasíða > Önnur söfn > Þuríðarbúð á Stokkseyri
Þuríðarbúð á Stokkseyri

Þuríðarbúð

Þuríðarbúð var reist af Stokkseyringafélaginu í Reykjavík árið 1949 til minningar um Þuríði Einarsdóttur formann og horfna starfshætti.

Þuríður Einarsdóttir formaður var fædd árið 1777, dáin 1863. Hún fór í sinn fyrsta róður ellefu ára gömul á bát föður síns en 17 ára varð hún háseti upp á fullan hlut hjá bróður sínum. Síðan stundaði hún sjósókn í rúma hálfa öld eða til 1843 en þá hætti hún sjómennsku sökum heilsubrests. Mestan þann tíma var hún formaður á bátum. Þótti hún góður formaður, útsjónarsöm, varkár en samt áræðin og vinsæl meðal háseta. Einstakt þótti að kona væri formaður á bát. Hún klæddist karlmannsfötum að jafnaði vegna sjómennskunnar en til þess þurfti leyfi sýslumanns.

Á Stokkseyri skiptu sjóbúðir eins og Þuríðarbúð tugum á seinni hluta 19. aldar. Þær voru hlaðnar úr torfi og grjóti. Bálkar voru meðfram veggjum og í þeim sváfu tveir og tveir saman og voru þeir kallaðir lagsmenn. Sjóbúðirnar voru allt í senn; svefnskáli, matstofa og dagstofa vermanna.

Þuríðarbúð var endurhlaðin árið 2001 undir stjórn Guðjóns Kristinssonar hleðslumeistara.


Söfnin á Suðurströndinni


 
Heim Safnið Sýningar Starfsemi Önnur söfn Á döfinni Grúsk Aðrir vefir Gestabók

Höfundarréttur © Byggðasafn Árnesinga · Hönnun: Vefur.is