Saga danskra starfsmanna við Mjólkurbú Flóamanna
Árið 1927 voru á Alþingi sett lög sem heimiluðu stjórn landsins að greiða 1/4 af stofnkostnaði
mjólkurbúa og til að aðstoða við að fá nægilega hátt lán hjá bönkum. Þessi lög vöktu framfara-
og sóknarhug hjá bændum og á næstu árum voru stofnuð nokkur mjólkurbú um landið, þar á meðal
á Selfossi og í Hveragerði.
En til starfa í mjólkurbúunum vantaði sérmenntaða menn sem ekki voru til á Íslandi. Þeir voru
því fengnir frá Danmörku. Þessi erlendu menn urðu svo leiðandi afl í starfsemi mjólkurbúanna
og mótuðu íslenskan mjólkuriðnað næstu áratugi.
Á Selfossi hafa margir danskir mjólkurfræðingar dvalist um lengri og styttri tíma og nokkrir þeirra
sem komu til starfa skömmu eftir stofnun þess búa enn á Selfossi. En hvaða áhrif höfðu þeir
á samfélagið og við hvaða aðstæður bjuggu þeir hér?
|