"Ísland 1951. Ljósmyndir Hans Malmbergs"
Í borðstofu Hússins á Eyrarbakka hefur verið opnuð sýningin "Ísland 1951. Ljósmyndir Hans Malmberg".
Kemur sýningin frá Þjóðminjasafni Íslands. Hans Malmberg var einn fremsti ljósmyndari Svía á sinni tíð
og birtust myndir hans í blöðum og tímaritum. Hann fór um Svíþjóð og tók myndir af daglegu lífi og viðburðum,
en hann ferðaðist einnig um heiminn og myndaði styrjaldir meðal annars í Kóreu og Vietnam og heimsþekkta
menn til dæmis rithöfundana George Bernhard Shaw og Ernest Hemingway og leiðtogann Ho Chi Min. Nokkrar
ljósmyndabækur voru gefnar út með myndum Hans Malmberg og var ein þeirra helguð myndum frá Íslandi.
Hún var gefin út árið 1951 á ensku og sænsku. Bókin hafði að geyma ferska sýn á Ísland og úrvals ljósmyndir sem
endurspegluðu efnistök blaðaljósmyndara sem starfaði í anda ljósmyndablaðanna. Á sýningunni á Eyrarbakka eru sýndar
nýjar stækkanir af Íslandsmyndum Hans Malmberg, einkum frá ferðum hans um Suðurland.
Sjá eldri sýningar undir valliðnum "Sýningar".
|