Vorsýning 1999:
Bæjamyndir Matthíasar Sigfússonar
Sýning á sama sjónarhorninu í fortíð og nútíð

Smelltu til að stækka |
Á skírdag 1999 var Byggðasafn Árnesinga, Húsinu á Eyrarbakka, opnað aftur eftir hefðbundna
vetrarlokun. Í borðstofu Hússins var opnuð sýning á málverkum eftir Matthías Sigfússon
listmálara. Sýningunni lauk þann 16. maí.
Á sýningunni voru kynnt málverk Matthíasar Sigfússonar sem sýna sveitabæi á fyrri hluta
þessarar aldar. Á sýningunni voru til samanburðar ljósmyndir teknar í dag frá nánast sama
sjónarhorni. Á þennan hátt miðlaði sýningin ekki einungis fortíðinni í verkum Matthíasar
heldur líka veruleikanum eins og hann er núna.
Matthías Sigfússon fæddist árið 1904 að bænum Egilsstaðakoti í Villingaholtshreppi, næstelstur
11 systkina. Hann fór snemma að heiman og vann fyrir sér bæði til sjós og lands og í listum
var hann sjálfmenntaður að mestu fyrir utan veturna 1934 til 1936 þegar hann sat á námskeiðum
hjá Jóhanni Briem og Tryggva Magnússyni. Var hann listmálari að aðalstarfi frá 1942 og tók
þátt í mörgum samsýningum bæði hér heima og erlendis. Matthías lést árið 1984.
|