Byggðasafn Árnesinga hlýtur íslensku safnaverðlaunin 2002

Lýður Pálsson safnstjóri með viðurkenningarskjöldinn.
|
Fimmtudaginn 12. september sl. voru íslensku safnaverðlaunin veitt í þriðja sinn á Höfn í Hornafirði. Dómnefnd
samþykkti að veita Byggðasafni Árnesinga verðlaunin þetta árið, fyrir byggingu á þjónustuhúsnæði safnsins sem var
fullfrágengið í apríl sl.
Safnaverðlaunin voru nú veitt í þriðja skipti, en til þeirra var stofnað á árinu 2000 að frumkvæði
Íslandsdeildar ICOM og Félags
íslenskra safnamanna. Síldarminjasafnið á Siglufirði hlaut verðlaunin
fyrst safna, en í fyrra fékk Fræðsludeild Listasafns Reykjavíkur verðlaunin. Markmiðið með verðlaunaveitingunni
er að efla faglegan metnað íslenskra safna og hvetja þau til að kynna menningararf þjóðarinnar á framsækinn og
áhugaverðan hátt.
Í álitsgerð dómnefndar segir:
„Dómnefnd íslensku safnaverðlaunanna samþykkti einróma að veita Byggðasafni Árnesinga íslensku safnaverðlaunin árið
2002, fyrir byggingu á þjónustuhúsnæði safnsins sem var fullfrágengið í apríl sl. Safnið hlýtur verðlaunin vegna áherslu
á faglegt innra starf og framsýni sem lýsir sér í byggingu nýs þjónustuhúsnæðis.
Segja má að Byggðasafn Árnesinga hafi frá upphafi glímt við aðstöðuleysi svo sem fleiri söfn í landinu gera.
Árið 1995 hófst uppbyggingarskeið hjá safninu þegar opnaðar voru nýjar sýningar í Húsinu og Assistentahúsinu á
Eyrarbakka. Þá höfðu bæði húsin hlotið gagngera viðgerð en eftir stóð að rými vantaði fyrir innra starf safnsins,
þ.e. söfnun, varðveislu, skráningu og sýningagerð. Innra starf safnanna er grundvöllur þess sem blasir við hinum
almenna safngesti. Skráning og yfirsýn starfsmanna yfir safnkostinn, traustur og öruggur aðbúnaður hans eru
mikilvægustu þættir þess að safnstarfið þrífist til framtíðar.
Þetta hefur verið leiðarljós forráðamanna Byggðasafns Árnesinga sem báru gæfu til þess að leysa frumþarfir
stofnunarinnar með uppbyggingu hinnar glæsilegu vinnu- og þjónustuaðstöðu safnsins á Eyrarbakka. Húsið var reist á
skömmum tíma en frá því að framkvæmdin var boðin út í september 2001 liðu aðeins átta mánuðir þar til verktaki afhenti
húsið fullbúið 19. apríl. Staðsetning þess í þorpinu á afmarkaðri lóð utan sjálfs safnsvæðisins er prýðileg. Vinnustaða
fyrir starfsmenn safnsins er mjög góð og vinnan við að koma safngripunum í framtíðarhúsnæði er spennandi verkefni.
Það væri fengur fyrir safnastarfsemi á Íslandi ef fleiri söfn ættu þess kost að tryggja starfsemi sína og varðveislu muna
með svipuðum hætti og aðstandendur Byggðasafns Árnesinga á Eyrarbakka hafa búið sínu safni.“
Heimild: Fréttavefur Suðurlands
|