Heimasíða
 
 


English
English version

 Heimasíða > Önnur söfn > Rjómabúið á Baugsstöðum
Rjómabúið á Baugsstöðum

Rjómabúið

Eina rjómabúið sem stendur eftir með öllum búnaði er rjómabúið á Baugsstöðum, skammt frá Stokkseyri. Það var stofnað árið 1904 af 48 bændum úr Stokkseyrarhreppi og nágrannahreppum og var búinu valinn staður við Þórðarker við Baugsstaðaá. Jón Gestsson í Villingaholti sá um smíði hússins, 1500 metra langur skurður var grafinn úr Hólavatni og voru vélar búsins knúnar með vatni frá vatnshjóli. Rjómabúið tók til starfa árið 1905 og var starfrækt til 1952, lengst allra rjómabúa á Íslandi, en þegar best lét voru hátt á þriðja tug rjómabúa starfandi víða á landinu. Í rjómabúunum var framleitt smjör, ostur og annað úr rjóma sem bændur færðu til búsins. Mestur hluti framleiðslunnar var seldur til Englands sem "Danish butter". Fyrir tilstuðlan síðustu rjómabússtýrunnar, Margrétar Júníusdóttur, og aðstoðarkonu hennar Guðrúnar Andrésdóttur, tókst að halda áhöldum og húsnæði Baugsstaðarjómabúsins við. Árið 1971 var stofnað varðveislufélag um rjómabúið á Baugsstöðum. Frá 1975 hefur rjómabúið á Baugsstöðum verið opið almenningi sem safn. Tæki þess eru upprunaleg og eru þau gangsett fyrir gesti.


Söfnin á Suðurströndinni


 
Heim Safnið Sýningar Starfsemi Önnur söfn Á döfinni Grúsk Aðrir vefir Gestabók

Höfundarréttur © Byggðasafn Árnesinga · Hönnun: Vefur.is