Heimasíða
 
 
 Heimasíða > Á döfinni

Portrett, Sigurjón Ólafsson myndhöggvari

Á menningarhátíð Árborgar, Vor í Árborg, þann 24. maí sl. var í borðstofu Hússins á Eyrarbakka opnuð sýning á portett-myndum eftir Sigurjón Ólafsson myndhöggvara. Efni sýningarinnar er einkum beint að æsku og uppruna Sigurjóns en hann var fæddur í Einarshöfn á Eyrarbakka árið 1908. Hann var nemandi í Barnaskólanum á Eyrarbakka frá 1916 til 1922 – en skólinn fagnaði einmitt 150 ára afmæli sínu nú í vetur. Aðalsteinn Sigmundsson varð skólastjóri á þessum árum og gerði teikningu að nýrri kennslugrein við skólann. Varð strax ljóst hvaða hæfileika Sigurjón hefði sem myndlistarmaður. Hann hafði mikil áhrif hér heima og í Danmörku en höggmyndalist Sigurjóns þykir einstök á evrópskan mælikvarða.

Sýningin stendur til 9. ágúst og er opin á opnunartíma safnanna á Eyrarbakka, Byggðasafns Árnesinga í Húsinu og Sjóminjasafnsins á Eyrarbakka, sem er alla daga frá 10-18 frá 1. júní til 31. ágúst.

Um miðjan ágúst næstkomandi og frameftir hausti verða Suðurlandsmyndir Sigfúsar Eymundssonar ljósmyndara á veggjum borðstofunnar. Ljósmyndirnar voru teknar á ferðum Sigfúsar um Suðurland á 9. áratug 19. aldar og gefa ómetanlega innsýn í mannlífið þegar Ísland rótgróið bændasamfélag. Sýningin kemur frá Sjóminjasafninu á Eyrarbakka í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands.



Sjá eldri sýningar undir valliðnum "Sýningar".


 
Heim Safnið Sýningar Starfsemi Önnur söfn Á döfinni Grúsk Aðrir vefir Gestabók

Höfundarréttur © Byggðasafn Árnesinga · Hönnun: Vefur.is